Hlutabréf í megrunarfyrirtækinu Weight Watchers hækkuðu um tæplega 20 prósent í kjölfar sjónvarpsauglýsingar í Bandaríkjunum sem innihélt Opruh Winfrey.
Þessi vinsæli þáttarstjórnandi ræddi í auglýsingunni um erfiða baráttu sína við aukakílóin og mátti sjá gömul myndbönd af henni stunda líkamsrækt í gegnum tíðina. Hún bað áhorfendur svo um að ganga til liðs við sig í baráttunni og sagði: „Gerum þetta saman.“
Oprah keypti 10 prósenta hlut í fyrirtækinu fyrir 43,2 milljónir Bandaríkjadollara í október og síðan þá hefur hlutabréfaverðið meira en þrefaldast í verði. Er hlutur hennar nú yfir 148 milljóna dollara virði.
Weight Watchers, sem gengur út á að hjálpa fólki að grennast, hefur verið afar umdeilt í gegnum tíðina.