Hlutabréf Glitnis HoldCo og Haf Funding 2008-1 Limited í Lyfju eru glötuð. Þetta kemur fram í auglýsingu í Lögbirtingablaðinu, þar sem jafnframt er skorað á hvern þann sem kann að hafa hlutabréfin í vörslum sínum eða telja til réttar yfir þeim að gefa sig fram við stjórn Lyfju hf. innan þriggja mánaða.

Þessi tvö hlutabréf eru einu útgefnu hlutabréfin í félaginu. Samkvæmt ársreikningi Lyfju hf. er Glitnir eigandi 15% hlutafjár, og var vegna þess gefið út eitt hlutabréf að nafnvirði 37,5 milljónir króna. Haf Funding er hins vegar upphaflegur eigandi hins hlutabréfsins, sem er 212,5 milljónir króna að nafnvirði.

Eigið fé Lyfju nam 2,6 milljörðum króna í byrjun síðasta árs. Til mikils er að vinna, telji einhver annar en upprunalegur eigandi hlutabréfanna sig geta sannað rétt sinn yfir þeim.