Hlutafé í Isavia verður aukið um fjóra milljarða króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu. Þar segir að það sé skilyrði fyrir aukningunni að ráðist verði í innviðaframkvæmdir á Keflavíkurflugvelli strax á þessu ári.

Áætlaður fjöldi nýrra starfa sem verður til við þessar framkvæmdir nemur um 50-125 störfum fyrir hvern mánuð fram á mitt ár 2021. Þá mun verða til fjöldi afleiddra verkefna á Suðurnesjunum sem tengjast umfangsmiklum framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli.

Um er að ræða lið í aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar til að bregðast við efnahagsafleiðingum þess veirufaraldurs sem nú geisar og er liður í að auka opinberar framkvæmdir. Hluti milljarðanna fjögurra verður nýttur í hönnunarvinnu en afgangurinn í framkvæmdir. Aðgerðin mun einnig auka möguleika til opinberra framkvæmda á flugvellinum en áætlað er að heildarumfang fjárfestinga geti numið um sjö milljörðum króna.

„Síðustu daga höfum við séð okkar svörtustu spá um atvinnuleysi raungerast sem kallar á hraða en jafnframt upplýsta ákvarðanatöku,“ er haft eftir Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, í tilkynningunni . „Isavia hefur síðustu árin unnið mikla undirbúningsvinnu hvað varðar framtíðaruppbyggingu á Keflavíkurflugvelli sem mun styðja við millilandaflug til og frá Íslandi til framtíðar. Það er skynsamlegt að halda áfram framkvæmdum á flugvellinum til að standa vörð um samkeppnishæfni Íslands þegar kemur að ferðamennsku. Þess vegna höfum við tekið ákvörðun um að leggja félaginu til aukið hlutafé til að það fái svigrúm til að ráðast í verkefni sem hefði að öðrum kosti verið frestað í ljósi aðstæðna.“

„Ákvörðun fjármála- og efnahagsráðuneytisins um að styðja við félagið gerir okkur kleift að fara í verkefni sem við hefðum annars ekki haft svigrúm til á þessari stundu,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. „Hún býr ekki eingöngu til ný störf í framkvæmdunum sjálfum heldur getum við vegna hennar staðið vörð um fjölda starfa innan Isavia. Innspýtingin mun einnig hafa jákvæð áhrif á Suðurnesjunum því margir sem þar búa starfa hjá okkur auk þess að til verður fjöldi afleiddra verkefna á svæðinu. Þetta er afar mikilvægt fyrir Isavia því það mun hjálpa okkur við að koma sterkari út úr þessum erfiðu tímum og gera flugvöllinn enn samkeppnishæfari til framtíðar.“