Á stjórnarfundi Marel Food Systems hf , sem haldinn var þann 10. ágúst 2007 var samþykkt að nýta heimild í grein 15.1. í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé um 3.204.965 krónur að nafnvirði. Með hlutafjárhækkuninni er verið að efna kaupréttarsamninga, sem gerðir voru við starfsmenn árið 2001 á genginu 42. Þar
með hækkar hlutafé Marel Food Systems úr 370.780.732 krónum á hlut í 373.985.697. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Hækkunin tekur gildi þann 21. ágúst 2007.