Tveggja milljarða heimild til hlutafjáraukningar var samþykkt á hluthafafundi MP banka í morgun.

Í tilkynningu frá MP banka kemur fram að tilgangur hlutafjáraukningarinnar sé að styðja við útlánavöxt bankans sem sé mikilvægur liður í uppbyggingu MP banka og stórt skref í átt að skráningu bankans á verðbréfamarkað árið 2014. Mætt var fyrir nærri 90% hlutafjár og var heimild til hlutafjáraukningar samþykkt einróma.

Hlutafé bankans verður þannig aukið úr 5,5 milljörðum króna í 7,5 milljarða og eiginfjárgrunnur fer úr fjórum milljörðum í sex milljarða. Þá segir í tilkynningunni að útlánageta bankans verði aukin úr 25 milljörðum króna í 50 milljarða króna.

„Útlán MP banka hafa aukist um 210% frá miðju ári 2011 eða úr 7,6 milljörðum í 23,6 milljarða. Sú aukning og meginuppistaðan í útlánum bankans er til fyrirtækja í atvinnulífinu,“ segir Sigurður Atli Jónsson, forstjóri MP banka.

„MP banka hefur tekist að auka umsvif sín á lánamarkaði sem lítið er að vaxa og er útlánaaukning bankans á fyrri helmingi ársins 2012 20% af útlánaaukningu bankakerfisins. Bankanum hefur verið afar vel tekið í atvinnulífinu og markaðurinn þarf greinilega á samkeppni frá einkabanka að halda.“