Hlutafjárútboði Flugleiða hf. er lokið. Voru seldir hlutir að nafnverði 420 milljónir króna á genginu 9,10. Nemur söluverð hlutafjárins því rúmum 3,8 milljörðum króna, en hlutafjárútboðinu var beint til fagfjárfesta. Alls óskuðu fjárfestar eftir að kaupa hlutafé fyrir tæpa 6 milljarða króna. Umframeftirspurn var því 56,4%.

Stjórn félagsins hafði ákveðið að selja 350-420 milljónir hluta, sbr.
tilkynningu félagsins frá 3. nóvember sl. Vegna mikillar eftirspurnar var
ákveðið að selja hlutafé að nafnverði 420 milljónir króna. Hlutaféð, sem
selt var í hlutafjárútboðinu, skiptist í nýja hluti og eigin hluti. Á
stjórnarfundi, sem haldinn var í Flugleiðum hf. eftir lokun markaða í dag,
10. nóvember, var ákveðið að hækka hlutafé félagsins um 230 milljónir króna að nafnverði, með útgáfu 230 milljóna nýrra hluta. Hinir nýju hlutir veita hluthöfum félagsins sömu réttindi og aðrir hlutir í því frá
skrásetningardegi hlutafjárhækkunarinnar sem fyrirhuguð er í næstu viku.
Þar var jafnframt samþykkt að selja eigin hluti félagsins að nafnverði 190
milljónir króna.

Heildarhlutafé félagsins eftir hækkun er 2.537.000.000 krónur að nafnverði
sem skiptist í 2.537.000.000 hluti.