Nýtt hlutafé er greitt með 500 milljóna króna skuldajöfnun við móðurfélagið Norvik. Þetta kemur fram í tilkynningu Byko til hlutafélagaskrár.

Samkvæmt síðasta birta ársreikningi Byko fyrir árið 2011 skuldaði félagið Norvik um 1,8 milljarða króna. Í árslok 2011 nam eigið fé félagsins rúmlega milljarði króna en Byko tapaði 352 milljónum króna á því ári.

Eignir félagsins námu tæplega 4,5 milljörðum króna í árslok 2011. Norvik, móðurfélag Byko, tapaði um 500 milljónum árið 2011 og nam eigið fé þess um 6,7 milljörðum króna.