Hluthafafundur Össurar samþykkti að heimila stjórn félagsins að auka hlutafé félagsins í áföngum á fimm árum um allt að kr. 77.100.000 að nafnverði, þannig að kr. 73.000.000 verði seldar með forgangsrétti til hluthafa.

Einnig avr samþykkt að selja kr. 4.100.000 með sölu nýrra hluta án þess að forgangsréttar­ákvæði 34. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög eigi við. Stjórn félagsins ákveður útboðsgengi þessara hluta og sölureglur hverju sinni, fresti til áskriftar og fresti til greiðslu þeirra.