Á hluthafafundi N1 í dag var samþykkt tillaga um lækkun hlutafjár félagsins um 25,5%, eða um 120 milljónir að nafnverði.

Hin samþykkta tillaga felur annars vegar í sér að hlutafé félagsins verði fært niður um kr. 120.000.000 að nafnverði og hins vegar að yfirverðsreikningur hlutafjár færist niður um kr. 1.423.851.256.

Hluthafar hafa verið hvattir til að kynna sér hugsanleg áhrif hvorrar færslu um sig á virði hlutafjár félagsins.

Samtals verður hlutafé félagsins því lækkað um kr. 1.543.851.265. Fjárhæðin verður greidd út til hluthafa félagsins hlutfallslega í samræmi við hlutafjáreign þeirra í félaginu í lok dags þann 18. desember 2015.

Félagið mun senda tilkynningu til Kauphallar þegar endanlegar dagsetningar liggja fyrir.