Á morgun hefst skráningartímabil fyrir hlutafé í Avion Group. Markaðsvirði útboðsins verður 6 milljarðar króna og er lágmarkstilboð 5 milljónir kr. að markaðsvirði. Boðnir verða út 157 til 175 milljónir hluta og verður verð á hlut á bilinu 34,3 til 38,3.

Einungis fagfjárfestum er heimilað að taka þátt. Markaðsvirði Avion Group eftir útboð verður á bilinu 58 til 63 milljarðar króna en miðað verður við meðalgengið í útboðinu. Niðurstöður útboðsins verða kynntar þann 23. desember.