Sjóvá
Sjóvá
© Haraldur Jónasson (VB MYND/HARI)

Hlutafjárútboð Sjóvár-Almennra mun hefjast 27. Mars næstkomandi og ljúka 31. Mars. Seldur verður 23% hlutur í félaginu. Fjárfestum eru boðnar tvær áskriftarleiðir, tilboðsbók A og tilboðsbók B.

Tíu prósent hluta í Sjóvá eru boðnir í tilboðsbók A, þar sem tekið er við áskriftum að andvirði 100 þúsund krónur til 10 milljónir króna. Í tilboðsbók A er tekið við áskriftum á verðbilinu 10,7-11,9 kr. á hlut.

Þrettán prósent hluta í Sjóvá eru boðnir í tilboðsbók B, þar sem tilboð eru yfir 10 milljónir króna og að lágmarki á verðinu 11,9 kr. á hlut.