Lokagengi Össurar í Kauphöllinni hér heima var 221 króna á hlut í lok síðustu viku. Í kauphöllinni í Kaupmannahöfn var gengið 11 danskar krónur, um 227 íslenskar krónur. Össur er tvíhliða skrá í kauphallirnar.

Í vikulegum markaðsfréttum Íslenskra verðbréfa segir að þeir sem eiga hlutabréf í Össuri í Kaupmannahöfn gætu selt bréf sín þar og keypt hlutabréf í félaginu hér heima þar sem bréfin eru ódýrari í íslenskri kauphöll.

„Þeir sem eiga bréfin úti gætu því selt þau þar og flutt andvirðið til Íslands og keypt Össur í kauphöllinni hér. Gjaldeyrishöftin leyfa slíkt en ferlið er þunglamalegt og því varla fýsilegur kostur,“ segir í markaðsfréttunum.