Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur tók dýfu niður á við strax þegar opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:20 í 4.254 stigum. Þannig hefur hún lækkað um 1,7% í dag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en aðeins eitt félag, Icelandair Group [ ICEAIR ] hefur hækkað í morgun.

Velta með hlutabréf er rétt rúmlega 570 milljónir. Þar af eru rúmlega 150 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ], 90 milljónir með bréf í Exista [ EXISTA ] og um 70 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] minni velta er með hlutabréf í öðrum félögum.

Krónan hefur veikst um 1,5% frá opnum gjaldeyrismarkaða en hafði um tíma í morgun veikst um allt að 1,7%. Gengisvísitalan stendur nú í 155 stigum.