Hlutabréf í Lloyds Banking Group hafa hækkað um 8,5% það sem af er degi.

Hækkunin kemur í kjölfar þess að Antonio Horta-Osario forstjóri félagsins sagði í dag að bankinn myndi lækka kostnað verulega.

Starfsmönnum verður fækkað um 15.000 og bankinn mun leggja niður starfssemi í 15 löndum af þeim 30 sem hann er með starfssemi í.