Um það bil 71% allrar orku á Íslandi er endurnýjanleg. Þetta kemur fram í framvinduskýrslu um endurnýjanlega orkugjafa á Íslandi sem atvinnuvegaráðuneytið og Orkustofnun tóku saman fyrir skemmstu. Skýrsluna í heild sinni má lesa með því að smella hér .

Ísland er með hæsta hlutfall endurnýjanlegrar orku allra Evrópuríkja en fast á hæla Íslendinga koma Norðmenn með ríflega 69% hlutfall endurnýjanlegrar orku. Í skýrslunni kemur fram að komist hafi verið hjá því að um það bil 350 milljón tonn koltvísýrings hafi sloppið í andrúmsloftið.

Því er ljóst, samkvæmt skýrslunni, að með notkun endurnýjanlegra orkugjafa draga landsmenn úr annars miklum útblæstri gróðurhúsalofttegunda, sem annars gætu haft hraðaaukandi áhrif á hlýnun jarðar.