LME ehf., sem er í eigu Marel hf., Eyris Invest ehf. og Landsbanka Íslands hf., hefur í gegnum dótturfélag sitt Ioliet Beheer B.V. aukið hlut sinn í hollenska félaginu Stork NV.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að Stork NV er í fjölþættum rekstri og er m.a. eigandi Stork Food Systems sem er leiðandi aðili í framleiðslu á búnaði til kjúklingavinnslu. Stork Food Systems og Marel hafa átt í áralöngu samstarfi. Eignarhlutur LME ehf. er nú 5,1%, en var 4,79% þann 31. mars sl., sbr. tilkynninu Marel hf. til Kauphallar Íslands hf. sem fylgdi uppgjöri fyrir fyrsta ársfjórðung þessa árs.