Eftir mikla fjölgun undanfarin ár stendur hlutfall kvenna í stjórnum stærri fyrirtækja nú nánast í stað milli ára. Árið 2015 voru konur 32,8% stjórnarmanna í fyrirtækjum með 50 starfsmenn eða fleiri, en voru 33,2% árið 2014. Til samanburðar var hlutfall þeirra í stjórnum stórra fyrirtækja 12,7% árið 2007 og 9,5% árið 1999. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands í dag.

Árið 2010 voru samþykkt lög um að hlutfall hvors kyns skyldi vera yfir 40% í stjórnum fyrirtækja með fleiri en 50 starfsmenn, og tóku þau að fullu gildi í september 2013.

Hlutfall kvenna í stöðu framkvæmdastjóra hækkar lítillega

Hlutfall kvenna í stöðu framkvæmdastjóra hækkaði lítillega frá fyrra ári, úr 21,6% í 21,9%, sem heldur áfram hægfara aukningu sem sjá má allt frá 1999, eða allan þann tíma sem gögn liggja fyrir.