Búið er að aldursgreina tæplega 2.000 rjúpur af þeim sem voru veiddar í haust og bendir sú greining til þess að viðkoma hafi verið minni en oft áður. Þetta kemur fram á fréttavefnum bb.is. Haft er eftir Ólafi K. Nielsen, vistfræðingi hjá Náttúrufræðistofnun, að skýringin geti legið í vondu veðri um mánaðarmót júní og júlí.
Hlutfall unga af veiddum fuglum var að meðaltali 71%. Lægst var hlutfallið á Austurlandi, 62% og þar næst á Vestfjörðum, eða 68%. Á Vestur- og Norðvesturlandi var hlutfallið 71% og á Norðurlandi var það 72%. Hæst var hlutfallið á Suðurlandi, 75%.