Hluthafafundur Dagsbrúnar hf. samþykkti í dag skiptingu félagsins í tvo hluta. Tillaga stjórnar Stjórn um skiptingu félagsinsí tvo hluta og samruni annar þeirra við Og fjarskipti ehf. í samræmi við fyrirliggjandi skiptingar- og samrunagögn var samþykkt einróma.

Einungis er um að ræða lögformlega breytingu í samræmi við ákvörðun samkeppnisráðs nr. 12/2005 um samruna Og fjarskipta hf. og 365 miðla en þar var gert að skilyrði að fjarskiptarekstri Dagsbrúnar hf. yrði komið fyrir í sjálfstæðum lögaðila.

Skiptingin hefur hvorki áhrif á heildarhlutafé Dagsbrúnar, né heldur rekstur félagins, dóttur- eða hlutdeildarfélaga.

Og fjarskipti ehf. tekur við fjarskiptarekstri félagsins og starfar áfram undir heitinu Og Vodafone. Forstjóri Og Vodafone er Árni Pétur Jónsson.