Stoðir Invest hafa verið án stjórnarformanns síðan Jón Ásgeir Jóhannesson sagði sig úr stjórn félagsins í byrjun nóvember. Eftir því sem komist verður næst verður fljótlega boðað til hluthafafundar en í stjórn félagsins sitja nú Kristín Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Gaums og Hreinn Loftsson hæstaréttarlögmaður og stjórnarformaður Birtings, útgáfufélags DV.

Þórdís Sigurðardóttir hefur hætt störfum sem framkvæmdastjóri Stoða Invest og hefur verið gerður við hana starfslokasamningur eins og kom fram í Viðskiptablaðinu í dag. Hún gegnir áfram störfum sem stjórnarformaður Teymis sem er helsta eign Stoða Invest. Ekki er rétt að Kristín Jóhannesdóttir sé stjórnarformaður Stoða eins og sagði í fréttinni en sú fullyrðing byggðist á röngum upplýsingum.

Við endurskipulagningu Baugs á rekstri sínum hér á landi í upphafi árs var rekstrinum skipt á milli Stoða og var Styrkur Invest stofnað utan um aðrar eignir Baugs. Stoðir átti í þeim félögum sem tengdust fjölmiðlum og tölvurekstri. Af þeim eru Humac og Nyhedsavisen gjaldþrota og Birtingur, útgáfufélag DV, hefur verið selt til Hreins Loftssonar. Sömuleiðis hefur 365, síðar Íslensk fjölmiðlun, verið seld inn í nýtt félag.