Fyrrverandi hluthafar í J Crew hafa sætt sig við 16 milljónir bandaríkjadala í bætur vegna yfirtöku tveggja fjárfestingasjóða á J Crew. Var áður búið að semja um 10 milljónir bandaríkjadala í sáttagreiðslu en sú tillaga var ekki samþykkt vegna ósættis. TPG Capital LP og Leonard Green & Partners LP keyptu fyrirtækið fyrir um þrjá milljarða bandaríkjadala en hluthafar töldu að þeir hefðu verið sviknir í kaupferlinu. J Crew á meira en 300 fataverslanir og gríðarlega umfangsmikla sölu á netinu og í gegnum vörulista.