Íslandsbanki hf. hefur fengið mjög góðar viðtökur við yfirtökutilboði í KredittBanken ASA í Noregi. Í morgun var send eftirfarandi tilkynning til kauphallarinnar í Osló um framvindu yfirtökutilboðs Íslandsbanka hf. Í KredittBanken ASA. "Að meðtöldum eignarhlut Íslandsbanka hf. í KredittBanken ASA þá hafa hluthafar sem hafa yfir að ráða meira en 67% hlutafjár í KredittBanken ASA nú þegar samþykkt yfirtökutilboð Íslandsbanka hf. í KredittBanken ASA."