Straumi-Burðarási Fjárfestingabanka hf. hefur borist afrit af bréfi til stjórnar bankans frá hluthöfum sem eiga yfir 10% af nafnvirði hlutafjár í bankanum, þar sem gerðar eru þær kröfur að boðað verði til hluthafafundar í bankanum og að nýtt stjórnarkjör fari fram. Stjórn bankans mun taka afstöðu til erindisins á næstu dögum, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Stærsti hluthafi Straums-Burðaráss er Fjárfestingarfélagið Grettir með 15,87%.

Stærstu hluthafar í Straumi-Burðarási:

Fjárfestingarfélagið Grettir hf 15,87%
Landsbanki Luxembourg S.A. 15,18%
MK-44 ehf 8 ,52%
Landsbankinn eignarhaldsfél ehf 5,94%
Smáey ehf 5,92%
Eignarhaldsfélagið SK ehf 5,05%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 5,04%
Gildi -lífeyrissjóður 4,59%
Eignarhaldsfélagið SKE ehf 3,21%
Fjárfestingarfélagið Brekka ehf 1,45%