Hluthafar bresku matvörukeðjunnar Morrisons óttast nú að keðjan muni bjóða of mikið fyrir hlut skilanefnda Landsbankans og Glitnis í Iceland Foods. Frá afiþessu greinir Independent og vísar til greinenda en talið er að Morrison hafi boðið 77 pens á hlut í félaginu. Iceland á 800 verslanir og auk Morrisons hafa Asda og Farm Foods auk framtakssjóðanna Bain Group og Blackstone lýst áhuga á hlutnum. Þá á Malcolm Walker, sem ræður 23% hlutafjár í Iceland forkaupsrétt á hlutnum að því gefnu að hann jafni tilboð annarra.