Hluthafafundur FL Group [ FL ] samþykkti í morgun að óska eftir afskráningu úr Kauphöll.

Hluthafar sem fara með rúmlega 84% hlutafjár voru mættir til fundarins. Tillagan var samþykkt með 99,86% greiddra atkvæða, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöll.