Samþykkt var á aðalfundi VÍS í dag tillaga stjórnar að hluthöfum verði greiddur arður sem nemur 73 aurum á hlut. Heildarfjárhæðin nemur 1.831 milljón króna og svarar til 85% af hagnaði félagsins. Hagnaður VÍS nam 2.154 milljónum króna í fyrra borið saman við 3.025 milljónir árið 2012.

Fram kemur í tilkynningu frá VÍS að arðsákvörðunardagur er 13. mars 2014 sem þýðir að skráðir hluthafar í lok dags 18. mars 2014 eiga rétt á arðgreiðslu sem greidd verður út 10. apríl 2014.