Hlutir Teymis hf. verða skráðir á Aðallista Kauphallarinnar í dag, mánudaginn 20. nóvember 2006. Útgefnir hlutir í Teymi hf. eru alls 2.728.200.000 að nafnverði. Teymi varð til við uppskipti á Dagsbrtún.

Teymi hf. starfar á sviði fjarskipta og upplýsingatækni.

Auðkenni Teymis í viðskiptakerfi Kauphallarinnar verður TEYMI

ISIN-auðkenni er IS0000013647. Orderbook ID 37305

Viðskiptalota verður 10.000 hlutir.

Umsjónaraðili skráningarinnar er Landsbanki Íslands hf.  Kauphöll Íslands hefur yfirfarið lýsingu Teymis hf., undirritaða 18. nóvember, 2006, og staðfestir hér með að lýsingin uppfyllir kröfur laga um verðbréfaviðskipti nr. 33/2003 sem breytt var með lögum nr. 31/2005 og reglugerðum sem settar eru á grundvelli laganna og fylgir hún hér með.