Samkvæmt úthlutun Fiskistofu fyrir fiskveiðiárið 2015/16 koma alls rúmlega 38.661 þorskígildistonn í hlut skipa HB Granda eða 10,12% af heildarúthlutuninni. Í tilkynningu til kauphallarinnar segir að þetta sé heldur lægra hlutfall en fiskveiðiárið á undan en þá voru þorskígildistonnin 40.125 og hlutdeildin í heildarkvótanum var á 10,67%.

Að þessu sinni eykst þorskvótinn mest eða um 909 tonn á milli ára. Ýsukvótinn eykst einnig, eða um 315 tonn, en samdráttur er í kvóta á ufsa, grálúðu og íslenskri sumargotssíld.

Tekið er fram að umrædd úthlutun tekur aðeins til botnfisks og íslenskrar sumargotssíldar sem úthlutað er innan fiskveiðiársins. Kvótum í deilistofnum, s.s. norsk-íslenskri síld, makríl, kolmunna, loðnu og úthafskarfa er úthlutað sérstaklega og hið sama á við um veiðiheimildir á þorski í Barentshafi.