Tekist er á um í Héraðsdómi Reykjavíkur hvert virði eignarhlutar tveggja fyrrverandi starfsmanna Fossa Markaða í fyrirtækinu sé.

Gunnar Freyr Gunnarsson og Þorbjörn Atli Sveinsson yfirgáfu markaðsviðskiptasvið Fossa og fóru yfir til Íslenskra fjárfesta í upphafi þessa árs. Þeir eiga samtals ríflega 11% hlut í Fossum. Gunnar Frey á 6,2% hlut í Fossum í gegnum félagið Selsvelli og Þorbjörn Atli á 5,4% í gegnum félagið Norðurvör.