Lindarhvoll ehf., fyrir hönd SAT eignarhaldsfélags hf., sem er í eigu ríkissjóðs Íslands, býður til sölu allan eignarhlut ríkissjóðs í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. Um er að ræða áður útgefna hluti í Sjóvá og nemur eignarhluturinn 13,93% alls hlutafjár í Sjóvá. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landsbankanum.

„Tilboðum skal skila á stöðluðu tilboðsformi sem fjárfestar geta nálgast á heimasíðu Landsbankans, Fjárfestar geta skilað inn fleiri en einu tilboði. Lágmark hvers tilboðs er 1.250.000 hlutir í Sjóvá, en hver hlutur í Sjóvá er 1 kr. að nafnverði. Lágmarksgengi í útboðinu eru 12,85 krónur á hlut.

Útboðið verður með hollensku fyrirkomulagi sem felur í sér að öll samþykkt tilboð bjóðast tilboðsgjöfum á sama gengi, þar sem lægsta samþykkta gengi ræður sölugenginu. Tilboðsfrestur rennur út klukkan 08.30 mánudaginn 26. september 2016. Tilkynnt verður um niðurstöðu útboðsins á vefsíðu Landsbankans, www.landsbankinn.is, að útboði loknu og eigi síðar en klukkan 09:30 mánudaginn 26. september 2016“ segir í tilkynningunni.

Verðið sem ríkið fær fyrir hlutinn er að minnsta 2.756 milljónir króna miðað við lágmarksgengi.