Bjarni Bjarnason hefur verið forstjóri Orkuveitunnar í þrjú ár. Hann segir það hafa verið mikilvægast í upphafi að greina vandlega hvar fyrirtækið væri statt og að ákveða hvaða hlutverki það ætti að gegna.
„Þegar ég kom hingað þá var það mjög á reiki hvert hlutverk Orkuveitunnar væri. Hún var lögð af stað í ferðalag í allar áttir. Við skárum það niður í það grundvallarhlutverk að reka veitukerfi og veita fólki góða þjónustu með ódýrum og traustum hætti og með þjónustulund. Mér sýnist að starfsfólkið hafi fundið sig í þessu og að það hafi endurheimt sitt fyrra stolt því gömlu fyrirtækin, vatnsveitan, hitaveitan og rafmagnsveitan, voru með sitt hlutverk alveg á hreinu. Með litlum efnum þurfti að byggja upp góð kerfi, reka þau vel og veita góða þjónustu. Ég kalla þetta afturhvarf til upprunans. Ég held að starfsmenn styðji þessa sýn. Þeir voru orðnir beygðir held ég og voru ekki sáttir við hvernig fyrirtækið hafði villst af leið. Mér finnst að þeir sem eru búnir að vinna hér lengi og þekktu til fyrir og eftir séu ánægðir og hafi áttað sig fljótt á því að þetta væri afturhvarf til upprunans,“ segir Bjarni.
Starfsfólk Orkuveitunnar hefur þurft að horfa upp á ýmsar breytingar eins og uppsagnir, afturköllun bílahlunninda auk annarra breytinga. Bjarni játar að það taki á að koma slíkum breytingum í gegn. „Þetta tekur allt tíma. Við unnum hér meira og minna allan sólarhringinn allt fyrsta árið. En það er þannig með okkur mennina að við viljum láta segja okkur satt. Ef við höfum það á tilfinningunni að það sé ekki verið að segja okkur satt þá líður okkur illa. Um leið og það liggur fyrir hvert vandamálið er þá er fólk miklu frekar tilbúið að vinna að því að leysa það.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast tölublaðið hér að ofan undir liðnum Tölublöð .