Fyrsta verslun H&M á Íslandi mun opna nú í hádeginu í Smáralind. Fyrstu 1.000 viðskiptavinur verslunarinnar munu fá gjafabréf en andvirði þeirra fer frá 25 þúsund krónum niður í 1.500 krónur.

Að sögn blaðamanns Viðskiptablaðsins  sem staddur er í Smáralind hafði þó nokkur röð myndast fyrir utan verslunina en þó væri enn tækifæri fyrir fólk að vera meðal fyrstu 1.000 viðskiptavina verslunarinnar. Þá má einnig geta þess að á opnunardaginn verður 20% afsláttur af öllum vörum verslunarinnar.