„Það hefur stundum verið sagt að ef eina verkfærið sem maður hefur er hamar, þá sýnist manni að allt sé nagli. Maður sér ekkert annað en það sem maður getur beitt hamrinum á,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra í sérstakri umræðu um efnahagsmál á Alþingi í dag.

„Mér verður hugsað til þessa þegar ég heyri svona mikla áherslu lagða á evru, af þeim flokkum sem að hafa það efst á sinni stefnuskrá að ganga í Evrópusambandið og taka upp nýjan gjaldmiðil,“ bætti fjármálaráðherra við og vísaði þar til stjórnarandstöðuflokkanna Viðreisnar og Samfylkingarinnar, sem eru með inngöngu í Evrópusambandið og upptöku evrunnar ofarlega á sínum stefnuskrám.

„Það er eins og öll vandamál verði leyst með upptöku gjaldmiðilsins. Það er alveg sama hvort það heitir atvinnuleysi, hátt húsnæðisverð eða samdráttur í efnahagsmálum og endurreisn ríkisfjármálanna - allt á þetta að gerast með nýjum gjaldmiðli,“ sagði Bjarni.

Engri þjóð tekist að lækka skuldir meira

Sagði Bjarni að þegar betur sé að gáð hafi Íslendingum farnast mjög vel við að byggja upp lífskjör á Íslandi, sem að þetta á endanum hljóti að snúast um. „Hvernig gengur okkur að byggja upp lífskjör, kaupmátt heimilanna og skapa verðmæti í landinu til að standa undir öflugu velferðarkerfi. Hvernig ganga þessi meginverkefni ríkisvaldsins?“ spurði Bjarni og svaraði í næstu andrá spurningu sinni sjálfur.

„Þau hafa flest öll gengið afar vel og reyndar gekk okkur, með okkar eigin gjaldmiðil og í krafti fullveldis með góða og skarpa sýn til framtíðar, að lækka skuldir ríkissjóðs meira á árunum 2011 til 2019 en nokkurri annarri þjóð í heiminum. Með okkar eigin gjaldmiðli.“

Engin óðaverðbólga

Því hafi sér þótt einkennilegt að standa í miðri umræðu um þörfina fyrir nýjan gjaldmiðil einmitt þegar vextir hafi sögulega aldrei verið lægri á Íslandi og þokkalegur verðstöðugleika hafi ríkt um langt skeið.

„Vissulega er ákveðið áhyggjuefni að verðbólgan sé um 4%, en það er engin óðaverðbólga á Íslandi og markaðirnir eru ekki að gera ráð fyrir neinni óðaverðbólgu. Okkur hefur því farnast vel og við höfum tæki og tól til þess að bregðast við aðstæðum. Það er ekkert sem kemur okkur undan því að glíma við heimsfaraldur, en ef við höfum trú á framtíðinni og þeim tækjum og tólum sem við höfum, og beitum þeim rétt, þá mun okkur áfram farnast vel,“ sagði ráðherrann að lokum.