Fjárhagsleg staða HoF er góð að því er kemur fram í frétt frá félaginu. Þar segir að House of Fraser eigi um 85 milljónir punda í lausu fé og þann 2. janúar greiddi fyrirtækið lán til banka upp á 34,5 milljónir punda og stendur félagið að fullu í skilum.

Heildarsala í verslunum House of Fraser í Bretlandi jókst um 4,5 prósent, miðað við sama tíma í fyrra, og hagnaður jókst, á fimm vikna tímabili frá 29. nóvember til 3. janúar. .