Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 0,27% í dag. Gengi bréfa Regins hækkaði um 0,90%, Haga um 0,56%, Eimskips um 0,36% og Marels um 0,32%. Ekkert félag lækkaði í virði í dag. Velta á hlutabréfamarkaði nam alls 219,9 milljónum króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,19% í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,26% en sá óverðtryggði lækkaði um 0,02%. Velta á skuldabréfamarkaði nam 16 milljörðum króna og þar af námu viðskipti með óverðtryggð bréf 13,8 milljörðum króna.