Án sérstakra aðgerða til að leysa greiðslujafnaðarvandann er ekki hægt að losa fjármagnshöftin án þess að taka óverjanlega áhættu með efnahagslegan og fjármálalegan stöðugleika. Kemur þetta fram í formála seðlabankastjóra í ritinu Fjármálastöðugleika, sem bankinn gaf út í dag.
Í stórum dráttum segir seðlabankastjóri að þær aðgerðir felist í því að dreifa endurgreiðslum erlendra lána, einkum gjaldeyrisskuld nýja Landsbankans við þann gamla, greiða fyrir lausn varðandi krónueignir búa föllnu bankanna sem ekki krefst þess að gengið sé á gjaldeyrisforða eða gjaldeyristekjur landsins jafnvel þótt aðgengi að erlendu lánsfé sé tarkmarkað og bæta aðgengi innlendra aðila að erlendum lánamörkuðum. Margs konar útfærslur á slíkum aðgerðum séu til skoðunar í samvinnu stjórnvalda og Seðlabankans, með hliðsjón af sviðsmyndum greiðslujafnaðar langt fram í tímann.
„Eins og margoft hefur komið fram er hann í stórum dráttum þríþættur. Í fyrsta lagi er afborgunarbyrði erlendra lána þung á þessu ári og næstu fjögur ár þar á eftir og umfram horfur um viðskiptaafgang. Í öðru lagi hafa innlendir aðilar aðrir en ríkið og Seðlabankinn enn takmarkaðan aðgang að erlendum lánamörkuðum á viðráðanlegum kjörum. Í þriðja lagi gæti uppgjör föllnu bankanna bætt verulega við kvikar krónueignir í höndum erlendra aðila sem höftin hamla útgöngu. Gætu þessar krónueignir farið upp í nærri hálfa landsframleiðslu ef krónueignir búa föllnu bankanna yrðu að fullu innheimtar og greiddar kröfuhöfum. Þjóðarbúið hefur hins vegar engan afgang af gjaldeyristekjum til að leysa út slíkar krónustöður,“ segir í formálanum.
Hann segir jafnframt að þótt greiðslujafnaðarvandinn sé enn skæður hafi staðan heldur batnað að undanförnu. Því valdi góður viðskiptaafgangur síðasta árs sem lækkaði skuldastöðuna meir en áður var búist við. Þá séu þyngstu árin varðandi raunverulegar afborganir af erlendum lánum þegar að baki og vísbendingar séu nú um að aðgangur nýju bankanna að erlendri lánsfjármögnun sé að batna.