Úrval erlendra og innlendra sérfræðinga prýða dagskrá Lean Ísland ráðstefnunnar 2. maí þar sem áhersla verður lögð á straumlínu (e.lean) stjórnunar, hugsunar og menningu. Meðal gesta verður Dr. Jeffrey Liker sem er m.a. höfundur metsölubókarinnar The Toyota Way: 14 Management Principles from the World’s Greatest Manufacturer.

Fyrirtæki og stofnanir í mörgum atvinnugreinum, bæði þjónustu og framleiðslu, eru byrjuð að nýta sér straumlínu í stjórnun og hugsun.

Með áherslum sínum á virði fyrir viðskiptavini og umbótamenningu er straumlínustjórnun að fá verðskuldaða athygli um heim allan.