Högni Hallgrímsson hefur verið ráðinn forstöðumaður verslana- og afgreiðslulausna Advania. Hann fer fyrir teymi sem veitir stórum og smáum verslunum alhliða þjónustu, svo sem við upplýsingakerfi, vélbúnað og vefverslanir.

Meðal afgreiðslulausna Advania eru sjálfsafgreiðslukerfi sem tekin hafa verið í notkun í stærstu matvöruverslanakeðjum landsins á undanförnum mánuðum. Neytendur hafa sýnt góða svörun við lausnunum og velja í auknum mæli að afgreiða sig sjálfir í verslunum. Sjálfsafgreiðslulausnir hafa því fest sig í sessi sem valkostur í fjölmörgum verslunum landsins og hafa umsvif Advania aukist verulega á þessu sviði.

Högni er með Cand. Science gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og hefur 18 ára reynslu af stjórnun og innleiðingu upplýsingakerfa. Hann starfaði áður hjá Össurri en lengst af hjá LS Retail þar sem hann vann í 15 ár, meðal annars sem framkvæmdastjóri ráðgjafasviðs.