Laxahrogna- og seiðaframleiðandinn Stofnfiskur hf. hagnaðist um 1.156 milljónir króna eftir skatta og gjöld á síðasta rekstrarári og jókst hagnaðurinn um 445 milljónir króna milli rekstrarára.

Tekjur jukust um rúmlega 400 milljónir króna milli ára, námu 3,4 milljörðum, en höfðu þar áður liðlega tvöfaldast. Bókfærðar eignir jukust um milljarð, stóðu í 5,7 milljörðum, en skuldir námu rúmlega 1,7 milljörðum. Líkt og á fyrra ári var enginn arður greiddur. Jónas Jónasson er framkvæmdastjóri félagsins.