Hollensk stjórnvöld harma niðurstöðu EFTA dómstólsins í Icesave-málinu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá talsmanni hollenska fjármálaráðuneytisins sem vitnað er til í frétt Ríkisútvarpsins .

Þar segir einnig að hollensk stjórnvöld ætli að fara yfir dóminn og meta afleiðingar sem hann kunni að hafa.