Hólmfríður Einarsdóttir, sem ráðinn hefur verið framkvæmdastjóri Ankra - Feel Iceland, býr yfir 15 ára reynslu af sölu- og markaðsstörfum en hún starfaði áður sem markaðsstjóri Íslandsbanka og þar á undan sem markaðsstjóri Símans og Kaupþings.

Hólmfríður útskrifaðist með B.S. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2003 og stundar nú MBA nám með vinnu í Rotterdam School of Management í Hollandi en þar er hún búsett ásamt fjölskyldu sinni.

Hún er gift Ragnari Þór Ragnarssyni framkvæmdastjóra hjá Samskipum og eiga þau þrjú börn á aldrinum 9-22 ára. Í kjölfar aukinna umsvifa Feel Iceland erlendis munu kraftar Hólmfríðar nýtast sérstaklega vel við kynningu og sölu á Feel Iceland og vörum fyrirtækisins bæði hér heima og erlendis að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Gaman er að segja frá því að Hólmfríður er alin upp í  Bolungarvík, yngst sjö systkina og byrjaði hún aðeins 12 ára gömul að vinna í fiski, segir þar jafnframt. En helstu hráefni í vörum Feel Iceland sem samanstanda af fæðubótefnum og húðvörum koma úr íslenskum þorski.