Þverfræðilegur hópur vísindamanna undir stjórn Guðrúnar Pétursdóttur, forstöðumanns Stofnunar Sæmundar fróða við Háskóla Íslands, og Guðrúnar Gísladóttur, prófessors í landfræði við Háskóla Íslands, hefur hlotið 420 milljóna króna styrk frá NordForsk til að koma á fót norrænu öndvegissetri um rannsóknir á því hvernig auka má öryggi samfélaga gagnvart náttúruhamförum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Háskóla Íslands.

Verkefnið, sem kallast NORDRESS, er víðtækt og þverfræðilegt og mun fjöldi vísindamanna og stofnana á Norðurlöndum vinna að því á næstu fimm árum, en stærstur hluti verkefnisins verður unninn á Íslandi. Áhersla er lögð á náttúruvá og viðnámsþrótt eða seiglu samfélaga, svo þau geti sem best búið sig undir og rétt sig við eftir áföll. Sjónum verður beint að einstaklingum, hópum, stofnunum og innviðum samfélagsins og kannað hvernig auka má viðbragðshæfni á ýmsum stigum. Unnið verður með mismunandi ógnir, allt frá staðbundnum, eins og ofanflóðum, til víðtækra eins og fárviðris, sjávar- og árflóða og eldgosa sem geta ógnað gríðarstórum svæðum, eins og dæmin sanna.

Meðal þess sem rannsakað verður eru áhrif náttúruhamfara á andlega og líkamlega heilsu fólks og hvernig búa má börn og fullorðna betur undir að takast á við slík áföll. Sérstaklega verður hugað að þætti fjölmiðla og samfélagsmiðla. Viðvaranir og viðbragðsáætlanir eru mikilvægur þáttur forvarna, en menn skilja þær með mismunandi hætti og því þarf að laga þær að mismunandi hópum. Almenn snjallsímaeign gefur nýja möguleika á að virkja almenning til þátttöku í vöktun vegna náttúruhamfara eins og flóða eða skógarelda, en setja þarf upp skilvirk kerfi til að gagn verði af því. Meta á spálíkön um náttúruvá og möguleg viðbrögð til dæmis við lokun samgangna á láði, legi og í lofti til að finna skilvirkustu leiðir fram hjá slíkum truflunum. Síðast en ekki síst verður reynslu og þekkingu á löggjöf og kerfum sem varða náttúruhamfarir, einkum velferðarkerfinu og almannavörnum, miðlað milli norrænu ríkjanna.

Til viðbótar beinum rannsóknarverkefnum verður áhersla lögð á menntun og þjálfun með fjölda námskeiða fyrir fjölbreytta hópa, s.s. björgunarsveitir, fjölmiðla, heilbrigðisstarfsmenn og doktorsnema á ýmsum fræðasviðum.

Að öndvegissetrinu stendur þverfræðilegur hópur vísindamanna og sérfræðinga frá öllum norrænu ríkjunum en verkefnið er vistað hjá Stofnun Sæmundar fróða við Háskóla Íslands. Vísindamenn m.a. á sviði landfræði, lýðheilsuvísinda, félagsráðgjafar, sálfræði, jarðvísinda, byggingar-, umhverfis- og samgönguverkfræði og jarðskjálftarannsókna innan Háskóla Íslands ásamt sérfræðingum frá almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra, Veðurstofu Íslands, Landhelgisgæslu Íslands og Viðlagatryggingar Íslands koma að verkefninu fyrir Íslands hönd. Þannig byggist verkefnið á samvinnu bestu sérfræðinga innan háskólans og utan.

Öndvegisstyrkurinn er veittur á vegum þverfræðilegrar norrænnar rannsóknaáætlunar um öryggi samfélaga (Nordic Societal Security Program) sem heyrir undir NordForsk, stofnun sem hefur umsjón með rannsóknasamstarfi á Norðurlöndunum. Markmiðið með rannsóknaáætluninni er að afla nýrrar þekkingar og lausna í öryggismálum samfélaga á Norðurlöndum en samfélagslegt öryggi er forsenda þess að samfélög geti starfað eðlilega og hægt sé að tryggja líf, heilsu og gildi borgaranna þegar áföll dynja yfir.