Þýsku lúxusbílaframleiðendurnir þrír, Audi, BMW og Mercedes Benz hafa allir birt sölutölur sínar fyrir síðasta ár. Allir þrír seldu þeir álíka marga bíla í fyrra.

BMW seldi mest 1,38 milljón bíla í fyrra og jókst salan um 13% milli ára. Audi seldi næst mest eða 1,3 milljón bíla. Söluaukningin var mikil, 19%.

Þar með tókst Audi að komast fram úr Mercedes Benz sem seldi 1,26 milljónir bíla en salan í Stuttgart jókst um 8%.

Audi, BMW og Mercedes Benz.
Audi, BMW og Mercedes Benz.