Hörður Helgi Helgason lögmaður hefur tekið við sem forstjóri Persónuverndar. Hörður Helgi er einn eigenda lögmannsstofunnar Landslaga.

Innanríkisráðuneytið setti Hörð í starfið frá og með 1. apríl 2013 til og með 31. mars 2014. Þetta kemur fram á vef Persónuverndar.