Bretar tryggja raforkuverð til framleiðenda í 15-35 ár á verðinu 115-215 dollarar á megavattstund. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að ef samið verði um slíkt verð er ljóst að sæstrengur yrði mun arðbærari en áður var talið. Hann segir jafnframt að Bretar þurfi á stýranlegri orku að halda.

VB Sjónvarp ræddi Hörð að loknum haustfundi fyrirtækisins.