Hörður Arnarsson forstjóri Landsvirkjunar var tekjuhæstur embættismanna og forstjóra ríkisfyrirtækja í fyrra, en tekjur hans námu rétt tæplega 3,7 milljónum króna að jafnaði á mánuði, samkvæmt álagningarskrám ríkisskattstjóra.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út á þriðjudag. Í blaðinu má finna upplýsingar um tekjur ríflega 3.700 Íslendinga. Að þessu sinnir eru tveir nýir flokkar í blaðinu. Annars vegar yfir tekjur áhrifavalda á samfélagsmiðlum og hins vegar fasteignasala.

Næstur í röðinni var Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar, en hún var með að jafnaði rétt tæplega 300 þúsund krónum minna á mánuði, eða um 3,4 milljónir á mánuði.

Fimm tekjuhæstu í flokki embættismanna og forstjóra ríkisfyrirtækja:

  1. Hörður Arnarson, forstj. Landsvirkjunar 3,7 milljónir
  2. Bergþóra Þorkelsdóttir, forstj. Vegagerðarinnar 3,4 milljónir
  3. Páll Matthíasson, forstj. Landspítala 2,7 milljónir
  4. María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands 2,3 milljónir
  5. Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkur 2.2 milljónir

Útreikningar Frjálsrar verslunar byggja á útsvarsskyldum tekjur á árinu 2018 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna starfa á fyrri ára. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði.

Árétting: Í tekjublaði Frjálsrar verslunar var Gestur Pétursson á lista yfir embættismenn og forstjóra ríkisfyrirtækja og titlaður sem framkvæmdastjóri Veitna. ofh. Gestur, sem var með tæplega 3,1 milljón króna að jafnaði í laun á mánuði í fyrra, hefur ekki tekið við starfi sínu hjá Veitum. Í fyrra starfaði hann sem forstjóri Elkem. Á þessum lista eru einni forstjórar opinberra fyrirtækja.

Tekjublað Frjálsrar verslunar er komið út. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér .