Á aðalfundi Flögu Group [ FLAGA ] var samþykkt tillaga fráfarandi stjórnar um að nýkjörn stjórn félagsins taki ákvörðun um að afskrá félagið úr Kauphöll Íslands.

Eldri stjórn mat það svo að afskráning félagsins komi til með að hámarka virði hluthafa, að sögn greiningardeildar Kaupþings.

Flaga hefur lækkað um 68% frá áramótum, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.