Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, segir að hætt sé við að stór íslensk fyrirtæki sæki fjármálaþjónustu erlendis sé þrengt um of að íslenskum bönkum. Viðskiptablaðið ræddi í vikunni við Höskuld um hugsanlegan aðskilnað viðskipta- og fjárfestingarbanka í kjölfar þess að greiningardeild Arion banka gaf út skýrslu um málið.
„Ég held að menn þurfi bara að hugleiða það. Ég vil ekki vera með neinar upphrópanir í þeim efnum en það er einfaldlega þannig að ef við getum ekki keppt hér þá sækja íslensk fyrirtæki fjármálaþjónustu annað.“
Hann segir jafnframt mikilvægt að við veljum rétt lönd að miða við. Bankakerfið hérlendis sé ekki sambærilegt við stóru alþjóðlegu bankana í Bretlandi og Bandaríkjunum. Hann bendir á að íslensku bankarnir séu ákaflega litlir, til dæmis í samanburði við skandinavíska banka. Þetta segir Höskuldur mikilvægt að hafa í huga. Réttara sé að horfa til Skandinavíu varðandi mögulegar breytingar en til Bandaríkjanna eða Bretlands. Höskuldur segir umræðu um aðskilnað viðskipta- og fjárfestingarstarfsemi varla til í Skandinavíu.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum tölublöð hér að ofan.