Uppgjör norrænna fyrirtækja fyrir árið 2007 hafa almennt verið góð þó dregið hafi úr vexti hagnaðar. Að sögn Vegvísis Landsbankans mun kastljósið á næstu vikum beinast að frammistöðu stóru bankanna og horfum þeirra fyrir árið 2008. Góð uppgjör samhliða miklum vaxtalækkunum í Bandaríkjunum náðu að stöðva  gengishrun hlutabréfa en þó er mikil óvissa uppi um hvort botninum sé náð á meðan lausafjárkrísan er enn til staðar. Nordic Outlook: February