Lánshæfisfyrirtækið Moody‘s hefur breytt horfum í mati þess á lánshæfi Orkuveitu Reykjavíkur úr stöðugum í jákvæðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitunni. Jafnframt segir Moody‘s í mati sínu að sá árangur sem náðst hefur í að styrkja fjárhagsstöðu Orkuveitunnar auki líkur á að lánshæfiseinkunn verði hækkuð. Orkuveitan er áfram með einkunnina B1.

Í tilkynningunni segir að helsti rökstuðningur Moody‘s fyrir einkunnagjöfinni er staðfesta stjórnenda Orkuveitunnar við framgang Plansins , þar sem öllum markmiðum hafi verið náð og gott betur; tekjur hafi aukist, kostnaður lækkað og sala eigna skilað tilsettum tekjum.

Áfram glímir Orkuveitan við gengisáhættu en í tilkynningu Moody‘s er sérstaklega vikið að því að greiðslugeta Orkuveitu Reykjavíkur hafi styrkst með öflugri sjóðstýringu og áhættuvarnarsamningum.